Erlent

Ný frímerki með myndum af Bretadrottningu

MYND/REUTERS

Breska póstþjónustan gaf í morgun út átta ný frímerki með myndum af Elísabetu II Bretlandsdrottningu. Frímerkin eru gefin út í tilefni af áttatíu ára afmæli hennar næsta föstudag. Myndirnar á frímerkjunum eru teiknaðar eftir myndum af henni allt aftur til ársins 1931 þegar hún var fimm ára. Auk frímerkjanna verður gefin út sérstök mynt og í sumar verður síðan gefið út sérstakt silfurfrímerki en það verður í takmörkuðu magni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×