Erlent

Heimsmarkaðsverð á olíu komið upp í 70 dali

MYND/AP

Heimsmarkaðsverð á olíufatinu er komið upp í sjötíu dali og hefur ekki verið hærra í átta mánuði. Ófriðurinn í Írak og óvissan um framleiðslu í Íran vegna kjarnorkuáætlunar klerkastjórnarinnar eru á meðal ástæðna fyrir hækkuninni. Haft var eftir olíumálaráðherra Katar í morgun að ólíklegt væri að Samtök olíuframleiðsluríkja, OPEC, myndu auka framleiðsluna til að mæta eftirspurninni. Þá hefur ríkisstjórn Tsjad hótað að stöðva olíuútflutning sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×