Erlent

Munu ekki styðja hernaðaraðgerðir

MYND/REUTERS

Tony Blair hefur tilkynnt George Bush Bandaríkjaforseta að Bretar geti ekki stutt innrás inn í Íran, jafnvel þó að alþjóðasamfélagið veiti sinn stuðning. Þetta hefur dagblaðið Skotsman eftir embættismönnum úr utanríkisráðuneyti Bretlands. Hvað sem öllu liði gætu Bretar ekki stutt innrásina með því að láta af hendi vopn eða mannafla. Allt öðru máli gegndi um annars konar aðgerðir og þannig útilokuðu Bretar ekki að styðja efnahagsþvinganir, ef Íranar sýndu engan samstarfsvilja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×