Erlent

Lögðu undir sig stjórnarráðið í Ramallah

Vopnaður Palestínumaður fyrir utan stjórnarráðið í Ramallah í dag.
Vopnaður Palestínumaður fyrir utan stjórnarráðið í Ramallah í dag. MYND/AP

Hópur herskárra Palestínumanna lagði undir sig stjórnarráðið í Ramallah í morgun. Mennirnir, sem voru um tuttugu talsins og allir gráir fyrir járnum, hertóku skrifstofurnar í rúma klukkustund en að lokum sannfærðu lögreglumenn þá um að leggja niður vopn.

Þeir vildu með athæfi sínu mótmæla ríkisstjórn Hamas-samtakanna en að því er AP-fréttastofan hermir eru þeir félagar í Al-Aqsa-herdeildunum, sem er klofningshópur úr Fatah-hreyfingu Makmúds Abbas, forseta palestínsku heimastjórnarinnar. Fyrr um daginn höfðu félagar þeirra lagt undir sig samgönguráðuneytið sem einnig er í Ramallah.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×