Íran orðið kjarnorkuveldi 13. apríl 2006 12:15 Mahmoud Ahmadinejad, forseti Íran. Mynd/AP
Forseti Írans, lýsti því yfir í morgun að Íran væri orðið kjarnorkuveldi og klerkastjórnin myndi ekki gefa þumlung eftir í viðræðum um kjarnorkuáætlun sína. Forstjóri Alþjóða-kjarnorkumála-stofnunarinnar kom til Teheran í gær til að freista þess að telja Írönum hughvarf. Íranar náðu mikilvægum áfanga í kjarnorkuáætlun sinni í vikubyrjun þegar þarlendum vísindamönnum tókst að auðga úran. Þar með færðust þeir skrefi nær því að geta framleitt rafmagn úr kjarnorku, en líka að framleiða kjarnavopn. Því ákvað Mohmamed ElBaradei, forstjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar að halda þegar í stað til Írans til að reyna til þrautar að fá klerkastjórnina ofan af áformum sínum. Við komuna til Teheran í gærkvöld kvaðst ElBaradei bjartstýnn á að heimsókn sín skilaði árangri. "Nú er rétti tíminn fyrir pólitíska lausn og leiðin að henni er viðræður." Ekki er víst að Íranar séu sjálfir sömu skoðunar því í morgun lýsti hinn herskái forseti landsins, Mahmoud Ahmadinejad því yfir að ríkisstjórn sín væri ekki einu sinni til viðræðu um breytingar á kjarnorkuáætluninni. ElBaradei flytur öryggisráði Sameinuðu þjóðanna skýrslu um stöðu mála í Íran þann 28. apríl og á grundvelli hennar verður ákvörðun tekin um aðgerðir gegn ríkinu. Ríkisstjórnir landanna fimm sem þar hafa neitunarvald, þar á meðal Rússland og Kína, lýstu í gær vanþóknun sinni á framferði Írana. Ekki er þó víst að sátt náist um stefnu öryggisráðisins því Kínverjar leggjast gegn viðskiptaþvingunum og öðrum refsiaðgerðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Fleiri fréttir Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sjá meira