Berlusconi segir kosningasvik hafa átt sér stað 12. apríl 2006 22:15 Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu. MYND/AP
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu og leiðtogi bandalags hægriflokka, segir víðtæk kosningasvik hafa átt sér stað í þingkosningunum á sunnudag og mánudag. Romano Prodi, leiðtogi bandalags mið og vinstri flokka, segir tímabært að Berlusconi víki. Berlusconi var mikið niðri fyrir í kvöld þegar hann sagði svik hafa verið í tafli í kosningunum. Þar með væri það ekki rétt að ólívubandalag Prodis hefði unnið nauman sigur í erfi og neðri deild þings líkt og opinberar tölur sýni. Forsætisráðherra var spurður hvort réttast væri að breyta úrslitunum og þá sagði hann að það yrði að gera. Prodi var fljótur að svara forsætisráðherranum og sagði kominn tíma til að hann viki úr embætti. Bandalag mið- og vinstri flokka hefði sigrað með heiðarlegum hætti. Margar spurningar hafa þó eflaust vaknað þegar fregnir bárust af því að fimm kassar fullir af kjörseðlum og öðrum kjörgögnum hefðu fundist í ruslatunnu í Róm í dag. Kassarnir voru allir merktir innanríkisráðuneyti landsins. Í þeim var einnig að finna önnur kjörgögn. Kassarnir fundust við grunnskóla sem er nálægt einum kjörstað. Prodi og Berlusconi hafa báðir átt fund með Carlo Azeglio Ciampi, forseta Ítalíu, í dag. Forsetinn hefur sagt að hann ætli að eftirláta arftaka sínum að veita stjórnarmyndunarumboð en kjörtímabili hans lýkur í næsta mánuði. Velja þarf nýjan forseta fyrir þrettánda maí og sagði Prodi í dag að nýtt þing myndi á næstu dögum byrja að semja um hver verði arftaki Ciampis. Prodi sagði einnig í dag að viðræður um skipan nýrrar ríkistjórnar myndu hefjast á næstu dögum. Hann segist hafa til þess nauðsynlegan meirihluta á þingi og engu skipti þó Berlusconi játi sig ekki sigraðann.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Sjá meira