Erlent

Harry prins orðinn herforingi

Harry, til hægri, ásamt bróður sínum Vilhjálmi við útskriftina í dag.
Harry, til hægri, ásamt bróður sínum Vilhjálmi við útskriftina í dag. MYND/AP

Harry prins, sonur Karls Bretaprins, útskrifaðist í dag úr Sandhurst-herskólanum með mikilli viðhöfn. Harry, sem er 21 árs, hóf þjálfun í maí í fyrra og útskrifast sem herforingi. Hann hefur lýst yfir áhuga á að berjast í fremstu víglínu í Írak og Afganistan þar sem fjöldi breskra hermanna er nú.

Meðal gesta við útskriftina var amma Harrys, Elísabet Bretlandsdrottning, faðir hans Karl Bretaprins og stjúpmóðirin Camilla Parker-Bowles, að ógleymdum Vilhjálmi, bróður Harrys. Harry virðist þegar búinn að fagna áfanganum því bresk blöð greina frá því að hann hafi sést á strípibúllu í Lundúnum um síðustu helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×