Rússar skora á Írana að láta af kjarnorkuvinnslu 12. apríl 2006 12:30 MYND/AP
Íranar hafa færst skrefi nær atómsprengjunni eftir að þeir tilkynntu í gær að þeim hefði tekist að auðga úran. Rússar skoruðu á Írana í morgun að láta af kjarnorkuvinnslu sinni. Íranar fögnuðu ákaft og vegsömuðu guð sinn þegar Mahmoud Ahmandinejad, forseti landsins, tilkynnti í gær að írönskum vísindamönnum hefði tekist að auðga úran. Vinnslan er nauðsynleg til að hægt sé að nýta efnið til orkuframleiðslu en líka til að búa megi til kjarnorkusprengjur. Þetta óttast einmitt þorri alþjóðasamfélagsins sem telur að sá leyndarhjúpur sem hvílt hefur yfir vinnslunni hingað til bendi til að Íranar hafi óhreint mjöl í pokahorninu. Bandaríkjamenn hafa varað klerkastjórnina í Íran við að halda áformum sínum til streitu og í morgun skoruðu Rússar á hana að stöðva vinnsluna enda væru þeir "á rangri leið" eins og það var orðað í yfirlýsingu rússneska utanríkisráðuneytisins. Mohammed ElBaradei, forstjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, mun á næstunni halda til Teheran til viðræðna við ráðamenn þar og mun að þeirri heimsókn lokinni skila skýrslu til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Líkurnar á að Íranar verði beittir viðskiptaþvingunum hafa minnkað umtalsvert eftir að Kínverjar, sem hafa neitunarvald í ráðinu lýstu því yfir að þeir væru þeim andvígir.
Erlent Fréttir Mest lesið Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Erlent Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Erlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent „Hamfarir og ekkert annað“ Innlent Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki Erlent „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Erlent „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Innlent Fleiri fréttir Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent