Erlent

SAS Braathens býður þrjár milljónir flugmiða á útsölu

SAS Braathens hefur gripið til þess ráðs að bjóða þrjár milljónir flugmiða á útsölu um páskana til að lokka aftur til sín viðskiptavini eftir verkfall flugmanna á dögunum. Félagið ætlar með þessu að taka sér stöðu sem lággjaldaflugfélag og ná fyrri stöðu á markaði en bæði er um flugmiða í innanlands- og utanlandsflugi að ræða. Keppinautar SAS Braathens í Skandinavíu hafa ekki brugðist við tíðindunum og því óljóst hvort það stefni í verðstríð á næstu dögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×