Vísa orðum Hersh á bug 10. apríl 2006 18:54
Bandarísk stjórnvöld neita því alfarið að þau íhugi að gera kjarnavopnaárás á írönsk kjarnorkuver eins og fullyrt er í tímaritinu New Yorker. Þau útiloka þó ekki að beita Írana hervaldi haldi þeir kjarnorkuáætlun sinni til streitu. Óhætt er að segja að grein rannsóknarblaðamannsins Seymours Hersh í nýútkomnu hefti bandaríska tímaritsins The New Yorker hafi valdið athygli. Í henni staðhæfir Hersh að Bandaríkjamenn undirbúi stórfelldar hernaðaraðgerðir gegn Írönum til að koma í veg fyrir að þeir komi sér upp kjarnavopnum. Þar sem auðgun úrans fer að mestu fram í vinnslustöðvum neðanjarðar segir Hersh hernaðarsérfræðinga landvarnaráðuneytisins ekki útiloka að beita smáum kjarnorkusprengjum til að eyða þeim. Í gærkvöld vísaði Dan Bartlett, einn helsti ráðgjafi Bush Bandaríkjaforseta, ásökunum Hearsh um beitingu kjarnavopna algerlega á bug og sagði þær einkennast af rangfærslum og vanþekkingu. Bandaríkjastjórn muni hér eftir sem hingað til reyna að ná samkomulagi við Írana en náist engar sættir áskilji hún sér rétt til að beita hefðbundnum hernaðaraðgerðum gegn þeim. Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, sagði í dag allar bollaleggingar um kjarnorkuárás á Íran vera hreint rugl og íranskur almenningur virðist sömuleiðis vantrúaður á slíkt. Öruggt má telja að Bandaríkin myndu baka sér ævarandi fordæmingu fyrir að beita kjarnorkuvopnalausri þjóð slíkum vopnum. Þótt atómsprengjum yrði einungis varpað á hernaðarmannvirki myndi geislunin verða þúsundum borgara að fjörtjóni. Því eru líkurnar á slíkri árás mjög hverfandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira