Erlent

Kosið að nýju í Perú

MYND/AP

Allt útlit er fyrir að kjósa þurfi að nýju í Perú þar sem enginn frambjóðendanna í forsetakosningum landsins fékk meirihluta atkvæða. Það er þjóðernissinninn og fyrrum yfirmaður í her Perú, Ollanta Humala, sem leiðir naumlega eftir fyrstu umferð forsetakosninganna.

Humala er sem stendur með 27,3 prósent atkjvæða en fast á hæla hans kemur Lourdes Flores með 26,5 prósent atkvæða en hún er fyrsta konan sem býður sig fram til forseta í Perú. Fyrrum forseti Perú er svo þriðji en hann með 26,1 prósent atkvæða. Staðan er því tvísýn en búið er að telja um það bil helming atkvæða. Allt útlit er því fyrir að seinni umferð kosninganna fari fram þann 7. maí þar sem 50 prósent atkvæða þarf til hreppa forsetaembættið og í þeim munu þeir tveir frambjóðendur sem flest atkvæða hljóta í þessum kosningum bítast um embættið. Humala hefur heitið því að eyða meiru í fátæka og ef hann vinnur er búist við að hann stefni í sömu átt og Hugo Chaves hefur gert í Venesúela.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×