Erlent

Átti sex börn með föður sínum

Karlmaður í Þýskalandi á nú yfir höfði sér 15 ára fangelsi fyrir að misnota dóttur sína kynferðislega í rúm þrjátíu. Maðurinn býr ásamt fjölskyldu sinni á bóndabæ og lengst af héldu nágrannarnir að þar færi venjuleg fjölskylda en á heimilinu bjuggu tólf börn. Nú hefur elsta dóttir bóndans komið fram og sagt föður sinn hafa misnotað sig frá níu ára aldri og að saman eigi þau sex börn. Dóttirin, sem nú er 42 ára, segir föður sinn hafa hótað að drepa eitt barnanna ef hún færi til lögreglu og að móðir sín hafi aðstoðað föðurinn við misnotkunina með því að halda henni niðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×