Árásir á Írana í athugun 8. apríl 2006 19:06
Bandarísk stjórnvöld eru sögð undirbúa stórfelldar hernaðaraðgerðir gegn Írönum til að koma í veg fyrir að þeim takist að koma sér upp kjarnavopnum. Jafnvel er í athugun að varpa atómsprengjum á vinnslustöðvar Írana þar sem auðgun úrans fer fram. Það er bandaríski rannsóknarblaðamaðurinn Seymour Hersh sem heldur þessu fram í nýjasta hefti tímaritsins New Yorker en grein sína byggir hann á samtölum við ónafngreinda heimildarmenn í bandaríska stjórnkerfinu. Ástæður þessara bollalegginga eru vitaskuld áform Írana um að auðga úran sem stærstur hluti alþjóðasamfélagsins telur að séu liður í kjarnavopnavæðingu ríkisins. Hersh hefur áður haldið því fram að hernaðaraðgerðir gegn Írönum séu í bígerð en nú virðist undirbúningurinn kominn á nýtt stig. Að hans sögn hafa sérfræðingar landvarnaráðuneytisins í Pentagon þegar valið skotmörk þar sem kjarnorkuvinnsla er sögð fara fram. Á meðal þeirra er vinnslustöðin í Natanz, þar sem sjálf úranauðgunin er talin eiga sér stað, en þar sem hún er grafin tugi metra í jörðu telja Pentagon-sérfræðingarnir nauðsynlegt að beita sérstakri gerð kjarnavopna gegn þeim til að eyðileggja hana. Hersh segir stjórnvöld í Washington ekki ætla að láta þar við sitja því þau telji einu trygginguna fyrir kjarnorkuvopnalausu Íran sé að koma ríkisstjórn hins herskáa Mahmouds Ahmadinejads frá völdum. Því séu flugumenn Bandaríkjamanna þegar að störfum í landinu við að koma á tengslum við minnihlutahópa andsnúum stjórnvöldum sem gætu aðstoðað við að steypa stjórninni af stóli. Talsmenn Hvíta hússins og Pentagon hafa ekki viljað tjá sig um málið að öðru leyti en að segja að leitað verði allra leiða til að leysa deiluna við Írana með diplómatískum aðferðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Erlent Fleiri fréttir Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Sjá meira