Erlent

Héldu gestum á Burger King í gíslingu

Annar byssumannanna heldur gísl við einn af gluggum Burger King í Istanbúl í dag.
Annar byssumannanna heldur gísl við einn af gluggum Burger King í Istanbúl í dag. MYND/AP

Lögregla í Istanbúl handtók fyrr í dag tvo byssumenn sem haldið höfðu fólki í gíslingu í skamman tíma á Burger King veitingastað í borginni. Mennirnir voru gripnir á þaki veitingastaðarins eftir að annar þeirra hafði skotið af byssu sinni upp í loftið. Ekki er ljóst hverjir þeir eru eða hvort þeir voru á vegum einhverra samtaka en öllum gíslum var bjargað eftir umsátrið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×