Erlent

Plönturækt í geimnum?

Er hægt að rækta grænmeti og plöntur í geimnum? Þessari spurningu reynir nú hópur vísindamanna í Þrándheimi í Noregi að svara.

Alþjóðlegur hópur vísindamanan, með aðsetur í norska tækni- og vísindaháskólanum í Noregi, hefur reist sérstaka miðstöð svo hægt verði að svara þessari áhugaverðu spurningu. Þar fylgjast þeir með plöntum sólahringanna á milli til að skera úr um hvort hægt sé að rækta hinar ýmsu plöntur og grænmeti í löngum geimferðum.

Átta plöntur verða svo sendar út í geim innan örfárra mánaða og þeim komið fyrir um borð í alþjóðlegu geimstöðinni sem er á braut um jörðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×