Eldfimt ástand á Gasa-ströndinni 1. apríl 2006 19:15
Heimastjórn Palestínumanna, undir forystu Hamas-liða, hvetur herskáa Palestínumenn til að láta af árásum á liðsmenn Fatah-hreyfingar Abbas forseta. Ástandið á Gasa-ströndinni hefur verið eldfimt frá því leiðtogi herskárra Palestínumanna féll í árás Ísraela í gær. Til átaka kom milli fylkinga Palestínumanna í gær vegna árásarinnar og féllu þrír og rúmlega þrjátíu særðust. Þegar einn hinna látnu var borinn til grafar í morgun kom til átaka. Enginn mun hafa látið lífið í þeim. Fatah-liðar eru sakaðir um að hafa átt þátt í árásinni í gær. Ismail Haniyeh, forsætisráðherra, segir heimastjórnina fylgjast vandlega með þróun mála. Haniyeh segir hættulegt ástand að skapast í landinu og bætti því við að öryggissveitir myndu reyna að hafa hendur í hári byssumanna. Innanríkisráðherra heimastjórnarinnar, átti í dag fund með yfirmanni öryggissveita sem tengdar eru Fatah. Sá sagði að samið hefði verið um að árásin yrði í gær yrði rannsökuð. Þrátt fyrir að ýmis herská samtök Palestínumanna hafi samþykkt að leggja niður vopn meðan rannsókn fer fram ruddust fimmtán liðsmenn Al Aqsa hersveitanna, gráir fyrir járnum, inn í byggingu innanríkisráðuneytisins í Nablus á Vesturbakkanum í dag. Því umsátri lauk þó skömmu síðar án blóðsúthellinga.
Erlent Fréttir Mest lesið Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Innlent Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Innlent Fleiri fréttir Aðdragandinn: Hótanir og árásir á hótanir og árásir ofan Embættis- og ráðamenn tjá sig um árásina Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Leiðtogi í hvítrússnesku andspyrnuhreyfingunni frjáls Tugir látnir eftir þeir reyndu að sækja sér mat Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Aðgerðasinninn látinn laus en Hvíta húsið hyggst brottvísa Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Hyggst eftirláta á annað hundrað börnum sínum Telegram-auðinn Skrefi nær því að leyfa dauðvona fólki að leita sér dánaraðstoðar Sporvagni ekið inn í matarvagn í Gautaborg Danskur ráðherra kann ekki að meta auglýsingar Meta Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf Frestar aftur TikTok-banni Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Áhlaup ICE og óvissan veldur vandræðum Farið í gegnum „kolefnisþakið“ eftir þrjú ár Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Geimskipið sprakk á jörðu niðri Finnar draga sig út úr sáttmála gegn jarðsprengjum Leita „fjandskapar“ á samfélagsmiðlum námsmanna Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta Sjá meira
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent