Rice segir mistök hafa verið gerð í Írak 1. apríl 2006 18:45
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir ýmis mistök hafa verið gerð í tengslum við innrásina í Írak og eftirmála hennar en í grunninn hafi verið rétt að koma Saddam Hússein, fyrrverandi forseta, frá völdum. Ráðherrann er staddur í heimsókn á Bretlandi, þar sem mótmælendur hafa fylgt henni eftir við hvert fótmál. Mótmælendur hafa verið nokkuð háværir meðan á tveggja daga heimsókn Rice, utanríkisráðherra, til Norður-Englands hefur staðið. Hún hefur þurft að svara fyrir aðgerðir Bandaríkjamanna í Írak, Guantanamo-fangelsið á Kúbu og deilurnar fyrir botni Miðjaðarhafs. Rice ávarpaði gesti í ráðhúsinu í Blackburn í gær um leið og mótmælendur fyrir utan létu öllum illum látum. Ráðherrann sagði mótmæli mikilvæg í lýðræðiríki. Rice viðurkenndi að Bandaríkjastjórn hefði gert mistök í Írak. Í dag sagði Rice hins vegar að þessi ummæli hefðu verið rangtúlkuð og hún hefði verið að tala í óeiginlegri merkingu. Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, sagði á blaðamannafundinum í gær að ljóst væri að Bretar vildu að málefni Guantanamo fangelsins yrðu leyst en sagði þó að bresk stjórnvöld gerðu sér grein fyrir að tilvist þess væri afsprengi hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 2001. Rice átti í gær fund með forystumönnum múslima í Blackburn en þeir eru 20% íbúa þar í borg. Ráðgert var að Rice myndi heimsækja mosku í borginni í gær en þeirri heimsókn var aflýst þar sem óttast var að mótmælendur myndu láta ófriðlega þar.
Erlent Fréttir Mest lesið Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Loðna fundist á stóru svæði Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Fleiri fréttir Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Sjá meira