Erlent

Fjölmenn mótmæli í borgum og bæjum Frakklands

Frá mótmælum í Marseille í dag.
Frá mótmælum í Marseille í dag. MYND/AP

Þúsundir óeirðalögreglumanna vakta nú götur Parísar þar sem búist er við miklum mótmælum í dag vegna fyrirhugaðra breytinga á atvinnulöggjöf landsins. Fjöldamótmæli hafa verið skipulögð í tvö hundruð borgum og bæjum, þó að hvergi verði viðlíka fjöldi eins og í París. Starfsmenn um allt land hafa boðað til allsherjarverkfalls, til að mótmæla aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Samgöngur hafa tafist verulega vegna þessa og búist er við að ástandið versni enn þegar líða tekur á daginn og enn fleiri leggja niður störf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×