Drap sex og svo sjálfan sig 26. mars 2006 12:12
Gleðskapur ungmenna í Seattle í Bandaríkjunum breyttist í martröð í gær, þegar einn samkvæmisgestanna hóf skothríð með þeim afleiðingum að sex týndu lífi. Þegar lögregla kom á staðinn skaut hann sjálfan sig í höfuðið. Ekkert óvenjulegt virðist hafa verið á seyði í samkvæminu, þegar maðurinn, sem var á þrítugsaldri gekk á dyr, og út í bíl, sótti þar skammbyssu og haglabyssu, sneri aftur og hóf skothríðina. Fyrst myrti hann tvo veislugesta sem voru fyrir utan húsið og að því loknu óð hann inn og linnti ekki látum fyrr en fjórir í viðbót höfðu týnt lífi. Að sögn vitna rigndi skotunum úr byssum mannsins, en hann sagði ekki aukatekið orð á meðan á látunum stóð. Tveir særðust í kúlnahríðinni, þar af annar lífshættulega. Maðurinn var ekki hættur að skjóta þegar lögregla kom á staðinn aðeins örfáum mínútum eftir að skothríðin hófst. Þegar lögreglumenn skipuðu manninum að leggja frá sér vopn, skipti engum togum að hann rak byssuna upp í sig og tók í gikkinn. Ekki er vitað hvers vegna þetta skelfilega æði greip manninn, en ekkert bendir til að rifrildi eða hótanir hafi átt sér stað í aðdraganda brjálæðisins. Árásarmaðurinn hafði ekki áður komist í kast við lögin og var að sögn þeirra sem hann þekktu, bæði rólegur og hógvær. Vitað er að veislugestir höfðu haft áfengi um hönd og einhverjir reykt maríjúana, en lögregla vill ekki gefa upp hvort árásarmaðurinn hafi verið undir áhrifum vímuefna. Atburðir gærdagsins eru mestu fjöldamorð í Seattle í meira en tuttugu ár.
Erlent Fréttir Mest lesið Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fleiri fréttir Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Sjá meira