Skiptar skoðanir innan Samfylkingarinnar um flugvöll 22. mars 2006 22:30
Skiptar skoðanir eru um það innan þingflokks Samfylkingarinnar hvort Reykjavíkurflugvöllur eigi að víkja úr Vatnsmýrinni, en skoðanirnar grundvallast þó ekki á því hvort um er að ræða landsbyggðarþingmenn eða þingmenn á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram umræðum um staðsetningu sjúkraflugvéla í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, spurði í dag heilbrigðisráðherra hvort ráðuneytið hefði eftirlit með því að sjúkraflugvélar væru alltaf á þeim stað sem samningar við flugrekendur gerðu ráð fyrir og hvort refsiákvæði væri að finna í samningunum. Ástæða spurninganna var að sögn Magnúsar atvik sem komið hafa upp síðustu mánuði, í Vestmannaeyjum og á Vestfjörðum, þar sem sjúkraflugvélar hafa ekki verið fyrir hendi eða verið of seinar þegar á hefur reynt. Ráðherra sagði að ráðuneytið hefði beint því til heilbrigðisstofnana sem nýttu sér sjúkraflug að tilkynna það ef flugrekendur stæðu ekki við gerða samninga. Þá hefði sjúkraflutningamaður verið ráðinn til að hafa eftirlit með samningunum. Þá væri fyrir hendi heimild til að fella niður greiðslur til flugrekenda vegna þess sem vanefnt gæti verið. Enn fremur mætti segja upp samningum án fyrirvara vegna stórfelldra eða ítrekaðra vanefnda. Magnús lýsti því yfir við umræðurnar að mikilvægt væri að flugvöllurinn yrði áfram í Vatnsmýrinni út frá sjónarhóli heilbrigðisþjónustunnar þannig að sem stystan tíma tæki að koma fólki úr sjúkraflugi til aðalheilbrigðisstofnana landsins. Undir þetta tók heilbrigðisráðherra. Björgvin Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, vildi hins vegar flugvöllinn burt og sagði landið í Vatnsmýrinni of dýrmætt fyrir hann. Hins vegar væri mikilvægt að finna vellinum annan stað. Flokssystir hans, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, þingmaður Reykvíkinga, var hins vegar á öndverðum meiði og sagði landinu vel varið undir flugvöll í miðri borg.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira