Nöfn Guantanamo-fanga loksins birt 4. mars 2006 11:58 Frá fangabúðunum í Guantanamo MYND/AP
Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur í fyrsta sinn birt nöfn og þjóðerni þorra fanganna sem eru í haldi í Guantanamo-búðunum á Kúbu. Vonast er til að þar með geti farið fram sjálfstætt mat hvort þeir séu eins hættulegir og Bandaríkjastjórn heldur fram. Talið er að á sjötta hundrað fanga séu í haldi í hinni illræmdu herstöð Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa. Hingað til hefur hins vegar lítið verið vitað um hverjir dúsa þar því að eingöngu hefur verið hægt að byggja á frásögnum fanga sem sleppt hefur verið. Nú hefur bandarískur alríkisdómstóll hins vegar komist að þeirri niðurstöðu að á grundvelli upplýsingalaga beri landvarnaráðuneytinu að afhenda AP-fréttastofunni gögnin. Ekki þótti ástæða til að taka mark á mótbárum Pentagon um að birting þeirra væri skerðing á friðhelgi einkalífs fanganna enda telja gagnrýnendur búðanna að þeir sæti þar mun grófari mannréttindabrotum. Þau gögn sem nú hafa verið birt eru leynilegar greinargerðir sérstakra herdómstóla þar sem lagt er mat á hvort um fimm hundruð manns geti talist til þess sem bandarísk stjórnvöld kalla "óvinveitta vígamenn". Nöfn þeirra og þjóðerni eru hins vegar ekki í samfelldum lista heldur er þau að finna á víð og dreif um sex þúsund síðna löng málsskjölin þannig að dágóður tími mun fara í yfirferð þeirra. Mannréttindasamtök fagna úrskurðinum mjög og segja talsmenn þeirra hann höggva verulegt skarð í þann leyndarhjúp sem bandaríska ríkisstjórnin hefur sveipað svonefnt stríð sitt gegn hryðjuverkum. Þeir benda á að nú verði í fyrsta sinn hægt að meta á sjálfstæðan hátt hversu hættulegir fangarnir í Guantanamo raunverulega eru. Líklegt er þó talið að í búðunum séu fangar sem dómstólarnir fjölluðu ekki um og því er tæpast nokkuð um þá að finna í þessum gögnum.
Erlent Fréttir Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York Sjá meira