Erlent

Glitter dæmdur fyrir að misnota börn

Gary Glitter brosti á leið sinni í réttarsalinn. Hann var ekki eins brosmildur eftir að dómurinn hafði verið kveðinn upp.
Gary Glitter brosti á leið sinni í réttarsalinn. Hann var ekki eins brosmildur eftir að dómurinn hafði verið kveðinn upp. MYND/AP

Víetnamskur dómstóll hefur dæmt breska tónlistarmanninn Gary Glitter í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Glitter ber af sér allar sakir og segir málið allt vera samsæri gegn sér.

Frægðarsól Gary Glitters, sem heitir réttu nafni Paul Gadd, reis hæst á glamúr-rokktímabili áttunda áratugarins en undanfarin ár hefur leiðin legið lóðbeint niður á við. Árið 1999 fékk hann fjögurra mánaða dóm í Bretlandi fyrir að hafa barnaklám í fórum sínum Fyrir nokkrum árum fluttist hann til Kambódíu, en landið er alræmt fyrir þann áhuga sem barnaníðingar víða um heim sýna því, en þaðan var hann svo rekinn árið 2002 fyrir ótilgreindar sakir og flutti hann sig þá um set til Víetnam. Í nóvember síðastliðnum var hann tekinn höndum á flugvellinum í Ho Chi Minh vegna gruns um að hann hefði misnotað tvær telpur, tíu og ellefu ára, í íbúð sinni í Vung Tau.

Í morgun var hann svo dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir þennan óhugnanlega glæp. Að afplánun lokinni verður hann svo rekinn úr landi. Dómarinn sagði Glitter eiga sér engar málsbætur enda væri framburður stúlknanna afar trúverðugur. Engu að síður virtist dómurinn koma rokkaranum gjörsamlega í opna skjöldu. "Ég er saklaus. Þetta er samsæri, framið af þið vitið hverjum," sagði hann við fréttamenn en útskýrði ekki orð sín nánar. Talið er að hann eigi þarna við breska fjölmiðla sem farið hafa um hann mjög hörðum orðum. Í samtali við BBC í dag útilokaði lögfræðingur hans ekki að dómnum yrði áfrýjað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×