Viðræðurnar fóru út um þúfur 3. mars 2006 17:47
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna beiti Írana refsiaðgerðum vegna áforma þeirra um að auðga úran. Samningafundur utanríkisráðherra helstu ríkja Evrópusambandsins með erindreka Írana fór út um þúfur í morgun. Mánuður er síðan stjórn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar afréð á fundi sínum að reyna að ná samkomulagi við klerkastjórnina í Íran um kjarnorkuáætlun hennar áður en endanleg ákvörðun yrði tekin um hvort málinu yrði vísað til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Íranar vilja sjálfir auðga úran en það vill þorri alþjóðasamfélagsins ekki þar sem óttast er að úranið verði þá auðgað svo ríkulega að það megi nota í kjarnavopn. Rússar hafa boðist til að auðga úranið en það tilboð hafa Íranar ekki viljað þiggja. Í morgun funduðu utanríkisráðherrar Frakklands, Þýskalands og Bretlands með írönskum erindrekum, að frumkvæði þeirra síðarnefndu, en eins og svo oft áður skilaði sá fundur engu. Frank-Walter Steinmeier sagði í samtali við blaðamenn eftir fundinn að tíminn til sáttaumleitana væri að renna út. Á mánudaginn hittist stjórn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar og ákveður næstu skref. Sátt ríkir innan stjórnarinnar um að vísa málinu til öryggisráðsins en ekki er víst til hvaða ráða það mun grípa. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, benti á í samtali við fréttamenn í dag að engar umræður um deiluna hefðu átt sér stað í ráðinu og þess vegna væri ekki sjálfgefið að refsiaðgerðir gegn Írönum yrðu samþykktar. Rússar eiga mikilla viðskiptahagsmuna að gæta í Íran og því gætu þeir beitt neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að Íranar yrðu beittir efnahagsþvingunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira