Blóðbaðið heldur áfram í Írak - umferð einkabíla bönnuð í Bagdad 3. mars 2006 13:30 MYND/AP
Blóðbaðið í Írak ætlar engan endi að taka. Stjórnvöld hafa gripið til þess ráðs að banna umferð einkabíla í höfuðborginni Bagdad. Átökin milli sjía og súnnía virðast síst vera í rénun. Fimmtíu vopnaðir árásarmenn úr röðum súnnía myrtu minnst tuttugu og fimm sjía í Bagdad seint í gærkvöldi. Sjíarnir, sem voru við vinnu, vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið, þegar árásarmennirnir birtust skyndilega og hófu skothríð með fyrrgreindum afleiðingum. Eins og síðasta föstudag verður öll umferð einkabíla bönnuð í Baghdad í dag. Lögregla vaktar allar umferðaræðar inn í borgina og hefur fyrirmæli um að stöðva allar bifreiðar sem ekki eru í sérstökum erindagjörðum. Þetta er gert til að koma í veg fyrir bílsprengjuárásir. Í dag er föstudagsbænin mikilvæga og stjórnmálamenn hvetja trúarleiðtoga eindregið til að magna ekki upp reiðina í fólki í bæninni. Einn hópur þráir þó ekkert heitar en að ofeldið færist enn í vöxt og borgarastyrjöld brjótist út. Hryðjuverkasamtökin al-Qaida hyggjast fremja stóra hryðjuverkaárás í Írak á næstunni. Þetta hefur fréttastofa CBS eftir bandarískum embættismönnum í landinu. Ekki liggi fyrir hvort ætlunin sé að fremja eina stóra árás, eða margar árásir á sama tíma, en tilgangurinn sé að ýta landinu endanlega út í borgarastyrjöld.
Erlent Fréttir Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York Sjá meira