Slitnaði upp úr fundi ESB-velda og Írans 3. mars 2006 13:00 Fulltrúar, Frakka, Breta, Þjóðverja og ESB ræða við fréttamenn eftir fundinn í dag. MYND/AP
Flest bendir til að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykki í næstu viku að gripið verði til aðgerða gegn Íran. Í morgun slitnaði upp úr fundi milli Írana og stórvelda Evrópu, þar sem reyna átti að ná sáttum. Nú er mánuður liðinn síðan samþykkt var að senda kjarnorkuþróun Írans fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Í samþykktinni fólst að Íranar fengju þennan mánuð til að gera hreint fyrir sínum dyrum og sýna samstarfsvijla. Að öðrum kosti yrði íhugað að beita þá efnahagsþvingunum, nú eða jafnvel hervaldi, þó að almenn sátt virðist ríkja um að ekki verði gripið til þess nema að öllum öðrum leiðum fullreyndum. Á fundinum í morgun var gerð úrslitatilraun til að ná sáttum fyrir fund Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar á mánudaginn. Fundinn sátu auk fulltrúa Íransstjórnar, fulltrúar Frakka, Þjóðverja og Breta. Fundurinn skilaði engu og að honum loknum sagði Frank Walter Steinmeyer, utanríkisráðherra Þýskalands, að Íranar hefðu ekkert nýtt haft fram að færa á fundinum. Flest bendir því til að stórveldin sem eiga fast sæti í öryggisráðinu muni byrja að hnykkla vöðvana gagnvart Íran á næstu vikum. Á fundi Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar á mánudaginn verður tekin ákvörðun um næstu skref. Hinn opinskái forseti Írans, Mahmoud Ahmedinajad, lætur hins vegar allar hótanir sem vind um eyru þjóta og segir að ofríki vestrænna stórvelda muni ekki endast öllu lengur. Þau eigi eftir að finna fyrir þeirri öflugu óánægjubylgju sem sé að myndast í MiðAusturlöndum. Þegar hún skelli á af fullu afli muni vesturveldin og Síonistarnir ekki vita hvaðan á þau stendur veðrið.
Erlent Fréttir Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira