Erlent

Fjórtán hafa verið handteknir eftir rán í Bretlandi

Fjórtandi maðurinn hefur verið handtekinn vegna stærsta ráns sem framið hefur verið í Bretlandi. Þá standa stífar yfirheyrslur enn yfir tveim hinna handteknu, eftir að dómstóll samþykkti í gærkvöldi að framlengja gæsluvarðhald yfir þeim um sólarhring.

Þrír hafa þegar verið ákærðir og komu þeir fyrir rétt í gær. Breskar sjónvarpsstöðvar greindu í gær frá því að hluti þýfisins hefðu fundist í hýbýlum eins hinna ákærðu, en lögregla vill ekki staðfesta að það sé rétt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×