Erlent

Ólga vex vegna Nagorno-Karabakh

Spenna er tekin að magnast á ný á milli Armena og Asera vegna hins umdeilda Nagorno-Karabakh-héraðs, sem er að mestu byggt fólki af armensku bergi brotnu enda þótt það sé í Aserbaídsjan. Í gær heimsótti Ilham Alíjev, forseti Aserbaídsjan, hersveitir sem staðsettar eru í héraðinu og hét hann því að uppræta alla herflokka Armena sem þar eru búsettir, hvað sem það kostaði. Í dag lýsti Robert Kocharian, forseti Armeníu, yfir að hann myndi gæta hagsmuna frænda sinna í Nagorno-Karabakh og jafnvel viðurkenna héraðið sem sjálfstætt ríki. Löndin tvö hafa lengi tekist á um héraðið og hafa yfir þrjátíu þúsund manns fallið í þeim átökum síðasta hálfan annan áratug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×