Áframhaldandi óöld í Írak 28. febrúar 2006 13:00 Írakskir hermenn á vettvangi eftir bílsprengjuárás í Bagdad í morgun. MYND/AP
Gjáin milli súnnía og sjía í Írak gæti breikkað enn eftir sprengjuárás við legstein föðurs Saddams Hússein í morgun. Minnst þrjátíu og tveir hafa fallið í fimm sprengjuárásum fyrir hádegið. Sprengjan sprakk í morgunsárið við legstein föðurs Saddams Hússein í borginni Tíkrit. Þó að engum hafi orðið meint af, gæti árásin haft miklar afleiðingar, því að í augum súnníta er hún táknræn, og ljóst að atburðurinn verður ekki til að lægja öldurnar í landinu, sem hefur bókstaflega logað í óeirðum síðan í síðustu viku. Moskan yfir legsteininum skemmdist töluvert í árásinni og ljóst er að hún mun fara illa í súnníta, sem hafa orðið fyrir barðinu á hverri árásinni á fætur annarri eftir að uppreisnarmenn úr þeirra röðum sprengdu al-Askari moskuna, einn helgasta stað Sjía í síðustu viku. Eftir rólegan gærdag virðist ástandið aftur vera að versna í Írak. Níu sundurskotin lík fundust á víðavangi nærri borginni Bakúba í morgun. Ekki lggur fyrir hve langt er síðan fólkið var skotið, en líklega var það myrt í óöldinni í Írak í síðustu viku, þegar meira en tvö hundruð manns féllu í landinu eftir sprengjuárásina á al-Askari. Þá skemmdist önnur moska súnnía töluvert í morgun í enn einni hefndarárásinni frá uppreisnarmönnum úr röðum sjía. Og kyrrðin í Írak í gær virðist hafa verið lognið á undan storminum, því að í morgun voru gerðar þrjár sprengjuárásir í Bagdad. Minnst þrjátíu og tveir létust og áttatíu slösuðust, þar af margir lífshættulega. Þá féllu tveir breskir hermenn þegar bílsprengja sprakk í vegkanti í suðurhluta Íraks í morgun.
Erlent Fréttir Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira