Langstærsta rán í sögu Bretlands 23. febrúar 2006 22:00 MYND/AP
Ævintýralegt rán var framið á Englandi í fyrrinótt þar sem stolið var jafnvirði fimm milljarða íslenskra króna í beinhörðum peningum. Lögregla leitar ræningjanna ákaft en þeir virðast hafa falið slóð sína fullkomlega. Það var í fyrrakvöld sem ræningjarnir, dulbúnir sem lögregluþjónar, stöðvuðu yfirmann fjárgeymslu Securitas í Kent, skammt utan við Lundúnir, þar sem Englandsbanki geymir seðla sína. Þeir sögðu honum að búið væri að ræna eiginkonu hans og syni og ef hann færi ekki með þeim í geymsluna yrði fjölskyldu hans gert mein. Þegar í geymsluna var komið bundu þeir og kefluðu öryggisverðina og næstu klukkustundina dunduðu þeir sér svo við að stafla 43 milljónum sterlingspunda, eða rúmum fimm milljörðum íslenskra króna, í flutningabíl. Að því búnu slepptu ræningjarnir öllum gíslum sínum ómeiddum, þar á meðal fjölskyldu yfirmannsins, og óku svo á brott út í náttmyrkrið."Months and months of planning would have gone into this. Surveillance; acquiring police looking uniforms; vehicles; vehicles would have to be stored somewhere. They would have to know where the manager is living, what his routine is, what time of night he was expected home and his root to go home."Í dag bauð lögregla þeim sem veitt gæti upplýsingar sem leiða myndu til handtöku ræningjanna rúmar tvö hundruð milljónir. Í kvöld greindi svo Sky-fréttastofan frá því að einn hefði verið handtekinn. Þetta er langstærsta ránið í sögu Bretlands.
Erlent Fréttir Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira