49 lík hafa fundist 23. febrúar 2006 19:00 Þak markaðarins hrundi ofan á starfsmenn. MYND/AP
Í það minnsta 49 manns krömdust til bana og þrjátíu til viðbótar slösuðust þegar þak yfir markaðstorgi í Moskvu hrundi í morgun. Snjóþyngsli eru talin líklegasta skýringin á slysinu en lögreglan útilokar ekki hönnunargalla. Vanalega er ys og þys á þessum yfirbyggða markaði í Moskvu en í dag hefur verið þar ömurlegt um að litast. Í dögun, skömmu áður en átti að opna markaðinn, hrundi þak hans yfir á annað hundrað starfsmenn, sem flestir eru frá fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna, sem þar voru að undirbúa viðskipti dagsins. Björgunarsveitir voru þegar kallaðar á vettvang og unnu þær hörðum höndum í allan dag við að ná fólki út, lífs eða liðnu. Sumir þeirra sem festust undir brakinu náðu að hringja úr farsímum til að láta vita af sér, aðrir hrópuðu einfaldlega af öllum lífs og sálarkröftum. Að minnsta kosti 49 lík hafa fundist í rústunum og þrjátíu hafa verið fluttir til aðhlynningar á sjúkrahús. Enn eru tugir manna sagðir fastir í brakinu. Mikið hefur snjóað í Moskvu að undanförnu og er því talið að þakið hafi hreinlega gefið sig undan rúmlega hálfs metra þykku snjólagi sem hvíldi ofan á því. Lögreglan útilokar þó hvorki að eigendur hafi vanrækt að halda byggingunni við né að hönnunargalli geti verið orsök slyssins því fyrir tveimur árum hrundi þak á mannvirki sem sami arkitekt teiknaði. Þá fórust 28 manns. Í síðasta mánuði létust 66 í Katowice í Póllandi þegar þak á skautahöll lét undan snjóþunga, og í janúarbyrjun dóu 15 þegar þak annarrar slíkrar hallar í Bæjaralandi gaf sig af sömu ástæðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Innlent Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Innlent Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent Tilgangurinn að ná í „easy money“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Erlent Hækkar frítekjumark vegna hækkunar örorkulífeyris Innlent Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Innlent Fleiri fréttir Vörpuðu sprengjum á sjúkrahús með 15 mínútna millibili Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Habeck hættir á þingi Hótar að senda herinn til Baltimore El Mayo sagður ætla að játa sekt Tíunda skotið klikkaði Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Sjá meira