Erlent

Sharon í einn eina aðgerðina

MYND/AP

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fór í gærkvöld í enn eina aðgerðina en læknar þurftu að fjarlægja vökva úr kviðarholi hans. Sharon hefur legið meðvitundarlaus á sjúkrahúsi í Jerúsalem síðan í byrjun árs þegar hann fékk heilablóðfall. Flokkur Sharons, Kadima fengi 30 þingsæti ef kosið yrði núna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun dagblaðsins Ha'aretz. Fylgi flokksins hefur minnkað nokkuð síðustu daga. Fylgi Verkamannaflokksins hefur ekkert breyst frá síðustu könnun. Hann fengi 19 þingmenn og Likud bandalagið 14. Alls sitja 120 þingmenn sitja á Knesset, ísraelska þinginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×