Erlent

Jarðskjálfti upp á 7,5 á Richter í Mósambík

Jarðskjálfti upp á 7,5 stig varð í sunnanverðri Afríku seint í gærkvöld. Upptökin voru í Mósambík en jarðskjálftinn fannst einnig í Harare, höfuðborg Simbabwe, þar sem mikil skelfing greip um sig. Þar hristust hús og fólk í fastasvefni kastaðist úr rúmum sínum. Útvarpið þar sendi út neyðardagskrá og bað alla að halda ró sinni. Engar fregnir hafa enn borist af manntjóni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×