Njósnari handtekinn í Svíþjóð 22. febrúar 2006 18:46
Snurða hefur hlaupið á þráðinn í samskiptum Rússa og Svía eftir að rússneskur vísindamaður var handtekinn í Uppsölum, grunaður um njósnir. Rússar hafa sjálfir handtekið tvo njósnara sem grunaðir eru um að starfa fyrir Breta. Maðurinn, sem talinn er á þrítugsaldri var handtekinn í síðustu viku í háskólabænum Uppsölum, skammt norður af Stokkhólmi, en hann starfaði á tilraunastofu sem vann að líftæknirannsóknum í landbúnaði. Gagnnjósnadeild sænsku leyniþjónustunnar hefur lítið gefið upp um hvað Rússanum er nákvæmlega gefið að sök að öðru leyti en því að fyrir um ári síðan hefði hann staðið fyrir njósnum sem skaðað hefðu sænska herinn. Í gær sendi rússneska utanríkisráðuneytið frá sér yfirlýsingu þar sem tafarlausra skýringa var krafist frá sænskum yfirvöldum. Þar kom einnig fram að samskipti ríkjanna myndu óhjákvæmilega skaðast vegna málsins. Dagblaðið Dagens Nyheter hefur eftir sænskum embættismanni að Svíar furði sig á þessum harkalegu viðbrögðum Rússana. Sjálfir virðast Rússar hafa orðið á barðinu á njósnurum því í gær var greint frá því að tveir slíkir hefðu verið handteknir í Mosvku, grunaðir um að snuðra fyrir Breta. Hvorki hafa fengist upplýsingar um hvenær þeir voru handteknir né af hvaða þjóðerni þeir eru. Í síðasta mánuði sökuðu stjórnvöld í Moskvu breska sendiráðsstarfsmenn um reyfarakenndar hátækninjósnir og undirróðurstarfsemi með því að veita frjálsum félagasamtökum fjárstuðning. Þótt kalda stríðinu sé þannig fyrir löngu lokið eimir greinilega enn eftir af ýmsum þáttum þess.
Erlent Fréttir Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Sjá meira