Innlent

Nóatún sektað fyrir að segjast “bestir í fiski”

Góðir í fiski... en eru þeir bestir?
Góðir í fiski... en eru þeir bestir? MYND/ Heiða Helgadóttir

Neytendastofa hefur sektað Nóatún um 500.000 krónur fyrir að auglýsa að fyrirtækið væri best í fiski án þess að færa fyrir því sönnur.

Nóatún hefur ítrekað birt auglýsingar þar sem fram kemur fullyrðingin „bestir í fiski". Þetta gerir Nóatún þrátt fyrir að hafa lofað Neytendastofu að auglýsingarnar myndu ekki birtast fyrr en lögð hefðu verið fram gögn fullyrðingunni til sönnunar. Neytendastofa taldi því nauðsynlegt að beita viðurlögum laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins og sekta Nóatún um 500.000 krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×