Segist hafa fengið fyrirmæli um hvernig rukka ætti fyrir bílana 21. febrúar 2006 12:09 Jón Gerald Sullenberger bar vitni fyrir dómi í morgun þegar aðalmeðferð í Baugsmálinu var fram haldið í Héraðsdómi Reykjavíkur. MYND/Gunnar V. Andrésson
Vitnaleiðslur yfir Jóni Geraldi Sullenberger hófust í morgun þegar aðalmeðferð í Baugsmálinu var fram haldið í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þar sagði hann að honum hefðu verið gefin fyrirmæli um hvernig rukka ætti fyrir innflutning á bílum sem ákært er vegna og að hann hafi farið að þeim óskum til að tryggja að hann fengi greiddan útlagðan kostnað vegna bílakaupanna. Við upphaf þinghalds í morgun kom fram að dómarar í málinu tóku gild þau nýju gögn sem ákæruvaldið lagði fram í gær en verjendur mótmæltu þar sem þau höfðu ekki komið fyrir augu þeirra fyrr en þá. Síðan fóru verjendur þess á leit við ákæruvaldið að fulltrúum efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra yrði gert að yfirgefa dómsalinn á meðan vitnaleiðslur færu fram í dag. Fulltrúarnir urðu þegar við þeirri ósk. Því næst hófust vitnaleiðslur yfir Jóni Geraldi Sullenberger vegna kaupa hans og innflutnings á fjórum bifreiðum sem deilt er um í fjórum ákæruliðum af átta í málinu. Áður en vitnaleiðslur hófust óskaði ákæruvaldið eftir því að dómari gerði vitni grein fyrir því að honum væri ekki skylt að svara spurningum sem feli í sér játningu eða bendingu um að hann hafi framið refsiverðan verknað. Því næst var Jón Gerald spurður hvort hann hefði samið við lögreglu eða ákæruvald um að sleppa við ákæru í málinu eða hvort honum hafi verið lofað einhverju í skiptum fyrir vitnisburð sinn. Því neitaði hann. Fyrir rétti í morgun bar Jón Gerald að hann hefði verið milligöngumaður við kaupin. Þegar bílar hafi verið fundnir hafi hann farið eftir tilmælum um hverja ætti að rukka og um hvaða upphæðir. Hann hafi álitið það einu leiðina til að fá greiddan útlagðan kostnað vegna bílakaupanna. Jón Gerald var einnig spurður hvort hann hefði falsað tiltekin gögn í málinu, það er tölvupósta sem Kristín Jóhannesdóttir mun hafa sent honum en kannast ekki við. Því neitaði hann. Um klukkan ellefu lauk sækjandi skýrslutöku og við tóku verjendur tveggja ákærðu sem hafa spurt Jón Gerald í þaula um ýmsa anga viðskiptanna. Búast má við að þinghald verði fram eftir degi í Héraðsdómi.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira