Hóta að slíta öllu samstarfi 13. janúar 2006 14:56 Ali Asghar Soltanieh, nýr sendiherra Írans hjá Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni. MYND/AP
Íranar hafa hótað að hætta samstarfi sínu við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina, verði þeir kvaddir fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vegna kjarnorkuáætlunar sinnar. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna vill fresta refsiaðgerðum en utanríkisráðherrar Evrópusambandsins segja enga aðra leið í stöðunni. Íranar hafa samþykkt að ganga að samningaborðinu með Bretum, Frökkum og Þjóðverjum um kjarnorkuáætlun landsins. Utanríkisráðherrar landanna þriggja segja hins vegar viðræður við Írani aldrei hafa skilað neinu og vilja beita refsiaðgerðum. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, útilokar ekki að refsiaðgerðum verið beitt, það verði þó ekki strax enda hafi þær aldrei skilað góðum árangri að hans mati. Ráðherrarnir segja hins vegar bið engu skila og tekur utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleeza Rice, í sama streng. Íranar eru reiðir yfir afstöðu heimsins á að Íranir hefji framleiðslu á úrani að nýju sem þeir segja sinn rétt og vilja almennings í landinu. Hafa Íranir því hótað að hætta samstarfi sínu við Alþjóðlegu kjarnorkustofnunina, verði þeir kvaddir fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vegna málsins. Haft var eftir utanríkisráðherra Írans að þar með myndu Evrópuríki glata þeim möguleikum sem þau nú hafi til að semja. Ráðherrann sagði að verði öryggisráðinu blandað í málið eigi írönsk stjórnvöld ekki annars úrkosti en banna skyndiskoðanir fulltrúa kjarnorkustofnunarinnar á kjarnorkustöðvum í Íran. Bandaríkjamenn og Bretar hafa sagt að ekki komi til greina að Íranir fái að framleiða úran en þó sagt að vopnavaldi verði ekki beitt til að koma í veg fyrir það. Rússar buðust til að framleiða úran fyrir Írani en það þáðu þeir ekki og tilkynntu Rússar því Bandaríkjamönnum að þeir myndu ekki mótmæla refsiaðgerðum gegn landinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Fólk veltir fyrir sér hvort Áslaug Arna hafi verið slompuð í ræðustól Innlent Maðurinn kominn í leitirnar Innlent Skoða hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað Innlent Fær þyngri dóm fyrir að nauðga konu, taka það upp og senda henni Innlent NEL tekur fyrir mál fjölskyldu Sigurðar Kristófers í júní Innlent Fólki sé vel treystandi til að fá sér bjór á íþróttaviðburðum Innlent Íslendingur í Bandaríkjunum: „Þetta er mjög óþægileg staða“ Erlent Annar látinn eftir eldsvoðann á Hjarðarhaga Innlent Hvetja Íslendinga í Harvard til að hafa samband Erlent Lítil hreyfing á fylgi stjórnmálaflokkanna Innlent Fleiri fréttir Hvetja Íslendinga í Harvard til að hafa samband Ákærður fyrir að myrða sendiráðsstarfsfólk Ísraels Netanjahú segir Starmer, Macron og Carney draga taum Hamas Rússar notuðu Brasilíu sem njósnaraverksmiðju Íslendingur í Bandaríkjunum: „Þetta er mjög óþægileg staða“ Banna erlendum nemendum að sækja Harvard Eyðilegging í íbúðahverfi í San Diego eftir að lítil flugvél hrapaði Samþykktu billjóna dollara skattalækkanir og niðurskurð til velferðarmála Norðmaður fékk flutningaskip næstum inn í húsið á meðan hann svaf Tveir ísraelskir sendiráðsstarfmenn skotnir til bana í Washington Íbúar Austur-Grænlands mótmæltu einangrun og pólitísku afskiptaleysi Skutu mann í röngu húsi en brutu ekki af sér Nota lygapróf til að leita lekamanna og refsa þeim Notuðu þúsundir myndavéla til að vakta hergagnaflutninga Sat fyrir forseta Suður-Afríku með ásökunum um þjóðarmorð á hvítum Handtóku unga öfgahægrimenn sem hugðu á hryðjuverk Úkraínskur fyrrverandi embættismaður skotinn til bana í Madrid Norðmenn þurfa að taka tillit til loftslagsáhrifa olíuvinnslunar Dreifing hjálpargagna enn ekki hafin Senda farandfólk frá Asíu til Suður-Súdan Synir El Chapo sagðir hafa myndað afdrífaríkt bandalag Ætlar að eyða mun minna í pólitíkina Hætta viðræðum við Ísrael og boða aðgerðir Evrópuríki leggja refsiaðgerðir á „skuggaflota“ Rússa Fjarlægja höfundarmerkingu einnar frægustu fréttaljósmyndar sögunnar Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Kanada hóta aðgerðum gegn Ísrael Sagði „Diddy“ hafa hótað að láta hana hverfa Suðureyjargöng náðu ekki í gegnum Lögþingið Borga fyrir skotfæri til Úkraínu með frystum eigum Rússa „Frábært“ símtal en án niðurstöðu Sjá meira