Seinheppinn bankaræningi 10. janúar 2006 22:20
Seinheppinn ræningi í Salt Lake City í Bandaríkjunum skipulagði rán illa og uppskar í samræmi við það. Ræninginn stökk yfir afgreiðsluborðið, eins og sjá má á þessum myndum, hrinti gjaldkeranum og ógnaði henni með byssu. Síðar kom í ljós að vopnið var leikfangabyssa. Ræninginn neyddi gjaldkeranum að opna peningaskápinn. Þegar maðurinn var svo kominn með peningana í hendurnar lagði hann hins vegar ekki á flótta og óttaðist konan að hann ætlaði að nauðga sér. Hann batt fyrir augu hennar og munn en þá veitti hún mótspyrnu. Meðan á þessu gekk hringdi síminn. Ræninginn reyndi þá að rífa hann úr sambandi en tóks það ekki og símtólið datt í gólfið. Það var eiginmaður gjaldkerans sem hafði hringt. Hann heyrði það sem gekk á og hringdi í neyðarlínuna. Ræninginn lagði skömmu síðar á flótta án þess að vinna konunni mein. Hún studdi þegar á neyðarhnapp og hringdi í neyðarlínuna. Við skýrslutöku sagði konan að hún hefði kannast við ræningjann og kom þá uppúr dúrnum að hann hafði nokkrum dögum áður sótt um lán í bankanum. Hann hafði fyllt út alla viðeigandi pappíra og því var lögreglu í lófa lagið að hafa upp á manninum. Hann var handtekinn og ákærður fyrir rán og líkamsárás. Maðurinn játaði á sig glæpinn og sagðist hafa verið fjárþurfi og því hafi hann gripið til þessa örþrifaráðs.
Erlent Fréttir Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Sjá meira