Erlent

Árásir á Írana í athugun

Bandarísk stjórnvöld eru sögð undirbúa stórfelldar hernaðaraðgerðir gegn Írönum til að koma í veg fyrir að þeim takist að koma sér upp kjarnavopnum. Jafnvel er í athugun að varpa atómsprengjum á vinnslustöðvar Írana þar sem auðgun úrans fer fram.

Það er bandaríski rannsóknarblaðamaðurinn Seymour Hersh sem heldur þessu fram í nýjasta hefti tímaritsins New Yorker en grein sína byggir hann á samtölum við ónafngreinda heimildarmenn í bandaríska stjórnkerfinu. Ástæður þessara bollalegginga eru vitaskuld áform Írana um að auðga úran sem stærstur hluti alþjóðasamfélagsins telur að séu liður í kjarnavopnavæðingu ríkisins. Hersh hefur áður haldið því fram að hernaðaraðgerðir gegn Írönum séu í bígerð en nú virðist undirbúningurinn kominn á nýtt stig. Að hans sögn hafa sérfræðingar landvarnaráðuneytisins í Pentagon þegar valið skotmörk þar sem kjarnorkuvinnsla er sögð fara fram. Á meðal þeirra er vinnslustöðin í Natanz, þar sem sjálf úranauðgunin er talin eiga sér stað, en þar sem hún er grafin tugi metra í jörðu telja Pentagon-sérfræðingarnir nauðsynlegt að beita sérstakri gerð kjarnavopna gegn þeim til að eyðileggja hana. Hersh segir stjórnvöld í Washington ekki ætla að láta þar við sitja því þau telji einu trygginguna fyrir kjarnorkuvopnalausu Íran sé að koma ríkisstjórn hins herskáa Mahmouds Ahmadinejads frá völdum. Því séu flugumenn Bandaríkjamanna þegar að störfum í landinu við að koma á tengslum við minnihlutahópa andsnúum stjórnvöldum sem gætu aðstoðað við að steypa stjórninni af stóli. Talsmenn Hvíta hússins og Pentagon hafa ekki viljað tjá sig um málið að öðru leyti en að segja að leitað verði allra leiða til að leysa deiluna við Írana með diplómatískum aðferðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×