Erlent

Tveir Svíar létust í sjálfsmorðsárás í Írak

Tveir Svíar, fullorðinn maður og sex ára sonur hans voru á meðal þeirra sem létust í sjálfsmorðsárás á mosku í Bagdad í Írak í gær. Áttatíu biðu bana þegar þrír menn sprengdu sprengjur í einni af höfuðmoskum sjía þegar föstudagsbænir stóðu sem hæst. Að því er dagblaðið Dagens Nyheter hermir var hópur sænskra múslima í moskunni þegar ógæfan dundi yfir. Auk þeirra tveggja sem dóu slösuðust sjö Svíar alvarlega, þar af fimm börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×