Erlent

Settur á fleka gegn vilja sínum

Maðurinn var illa til reika þegar honum var bjargað um borð í olíuskipið.
Maðurinn var illa til reika þegar honum var bjargað um borð í olíuskipið. MYND/AP

Norskt olíuskip á leið til Svíþjóðar sigldi í gær fram á mann á fleka á Skagerak, um fimmtíu kílómetra norður af Jótlandi. Maðurinn var tekinn um borð í olíuskipið en þá var hann bæði kaldur og blautur og illa á sig kominn. Hann sagðist hafa verið farþegi á bresku skipi en að skipverjar hafi sett hann gegn vilja sínum á fleka gerðan úr fjórum olíutunnum og nokkrum spýtum. Maðurinn, sem talinn er vera bandarískur, hefur að öðru leyti lítið viljað tjá sig um vistina á flekanum en sænska lögreglan yfirheyrði hann við komuna til landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×