Skotið á nepalska mótmælendur 22. apríl 2006 21:00 Nepalar eru óhressir með Gyanendra konung sinn. MYND/AP
Nepalska lögreglan réðst í morgun gegn andófsmönnum sem reyndu að komast að konungshöllinni í Katmandú, höfuðborg landsins. Sáttatilboð konungs virðist hafa fallið í afar grýttan jarðveg hjá þegnum hans. Enn einn daginn logaði Katmandú í illindum og átökum. Þrátt fyrir útgöngubann freistuðu tugþúsundir mótmælenda þess í morgun að komast að höllu Gyanendra konungs og tjá honum óánægju sína með stjórnarhætti hans. Rúmt ár er liðið síðan hann tók sér alræðisvald í, að eigin sögn til að auðvelda baráttuna við skæruliða Maóista en við það hafa Nepalar ekki viljað una. Í gær bauð konungur sættir en hvorki stjórnmálamenn né almenningur telja tilboð hans fullnægjandi þar sem ekki er kveðið á um endurreisn þingræðis eða stjórnarskrár í því. Fjórtán hafa farist í mótmælum undanfarinna tveggja vikna en nepalska hefur lögreglan ekki tekið andófsmennina neinum vettlingatökum. Dagurinn í dag var engin undantekning því nokkrar tylftir þeirra slösuðust í átökum við öryggissveitir konungs. Táragasi var skotið að fólkinu og lögreglumenn létu höggin dynja á þeim sem á vegi þeirra urðu. Farsímakerfi hafa verið gerð óvirk til að erfiðara sé að skipuleggja frekari kröfugöngur. Ekkert lát virðist þó ætla að verða á þeim í bráð.
Erlent Fréttir Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Sjá meira