Erlent

Rice segir efnahagsþvinganir ólíklegar

Condi var hýr á brá á Indlandi í gær.
Condi var hýr á brá á Indlandi í gær. MYND/AP

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir ólíklegt að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna grípi strax til refsiaðgerða gegn Írönum vegna kjarnorkuáætlunar þeirra.

Á mánudaginn hittist stjórn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar og ákveður þá að líkindum að kæra Írana til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna vegna áforma þeirra um að auðga úran. Öryggisráðið getur ákveðið að beita Írana refsiaðgerðum, jafnvel hervaldi ef öll önnur ráð þrjóta. Rice, sem er stödd í Pakistan með Bush Bandaríkjaforseta, sagði hins vegar fyrr í dag við blaðamenn að hún teldi ekki sjálfgefið að öryggisráðið samþykkti strax að beita klerkastjórnina í Teheran efnahagsþvingunum, líklegra væri að ráðið myndi fyrst þrýsta enn frekar á Írana að láta af iðju sinni eftir diplómatískum leiðum.

Orð Rice ríma ágætlega við þau ummæli Sergei Lavrovs, starfsbróður hennar í Rússlandi, í gær að engin umræða hefði farið fram innan öryggisráðsins um kjarnorkuáætlun Írana og því væri ótímabært að ræða refsiaðgerðir að sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×