Erlent

Blóðið rennur eftir því sem stundin nálgast

Ísraelar hafa samþykkt að fara að vopnahléstilmælum Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna en áskilja sér rétt til að ráðast á hisbolla-skæruliða í sjálfsvörn. Flugskeytum hisbolla hefur rignt yfir Ísrael í dag og loftárásir Ísraela hafa orðið tugum manna að bana í Líbanon. Blóðugar orrustur áttu sér stað víðs vegar um suðurhluta Líbanons í dag.

Ísraelskir embættismenn sögðu síðdegis að vopnahlésályktun öryggisráðsins, sem ríkisstjórn Ísraels samþykkti í dag, næði einungis til aðgerða sem gætu talist til árása í sóknarskyni, en kæmi ekki í veg fyrir að ráðist væri að vopnabúrum skæruliða í Suður-Líbanon, því það væri í varnarskyni. Vestrænir stjórnarerindrekar óttast að þessi víða skilgreining Ísraela á árásum í varnarskyni kunni að verða til þess að vopnahléð - sem enn hefur ekki tekið gildi - renni út í sandinn.

Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, sagði ísraelskt herlið ekki myndu yfirgefa Líbanon fyrr en líbanskir hermenn og alþjóðlegir friðargæsluliðar kæmu í þeirra stað til að tryggja að Hisbollah þrífist ekki í Suður-Líbanon. Ennfremur tók hún fram að Ísraelar krefðust þess enn að hermennirnir tveir sem Hisbollah rændi fyrir rúmum mánuði yrðu látnir lausir og að vel yrði fylgst með því að Hisbollah næði ekki að fylla á vopnabúr sitt.

Ríkisstjórn Líbanons samþykkti ályktun öryggisráðsins samhljóða í gær en tveir ráðherrar Hisbollah segjast þó vilja setja fyrirvara við algjöra afvopnun skæruliðahópsins. Þeir samþykktu samt ályktunina til þess að freista þess að stöðva árásirnar. hisbollah hefur hins vegar samþykkt að líbanskir hermenn komi til Suður-Líbanons, sem þeir hafa þvertekið fyrir í mörg ár.

Nú þegar vongóðir þykjast sjá fyrir endann á árásunum sprengja báðir aðilar af auknum krafti. Loftárásir Ísraela á Beirút hafa í dag orðið í það minnsta 14 manns að bana og rúmlega 150 flugskeyti Hisbollah bönuðu einum Ísraela. Sendiherra Ísraels sagðist í dag eiga von á því að báðir aðilar bættu heldur í fram til klukkan fimm í fyrramálið að íslenskum tíma þegar vopnahléð tekur gildi ef allt fer samkvæmt áætlun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×