Blásýra lak í Saxelfi. 19. janúar 2006 12:42 MYND/AP
Vélabilun í efnaverksmiðju í Tékklandi er sögð hafa valdið því að töluvert af blásýru lak í ánna Saxelfi fyrir rúmri viku. Tékkar hafa varað Þjóðverja við mögulegri hættu af völdum blásýrunnar. Mörg tonn af fiski hafa drepist í ánni en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvað tjónið er mikið fyrir fiskimenn á svæðinu. Talið er að eitrað vatn flæði nú með ánni tæpa áttatíu kílómetra frá Draslovka-efnaverksmiðjunni þaðan sem eitrið lak. Fyrirtækið sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í vikunni þar sem vélabilun er kennt um en engar frekari skýringar eða upplýsingar eru gefnar. Sérfræðingar segja þetta það alvarlegasta slys sem orðið hafi í efnaverksmiðju í Tékklandi síðari ár en þó sé ástæðulaust að hafa áhyggjur af áhrifum á fólk og dýr önnur en fiska. Talsmaður tékkneska umhverfiseftirlitsins segir eitrið ekki lengur eins þétt í vatninu og fyrst eftir slysið. Blásýran sem hafi lekið leysist ekki upp í vatni og eyðist nú hægt og bítandi um leið og hún komist í tæri við súrefni. Tékkar hafa þegar varað yfirvöld í Þýskalandi við mögulegri hættu af völdum blásýrunnar. Drykkjarvatnið í þýsku borginni Dresden er unnið úr ánni sem rennur þar í gegn. Talsmaður efnaverksmiðjunnar segir blásýrumagn í vatninu yrði komið niður fyrir ásættanleg mörk þegar eitrað vatn tæki að renna um Þýskaland á næsta sólahring. Blásýra er eitrað efni sem er meðal annars notað er í vefnaði og papírs- og plast framleiðslu. Töluvert af blásýru lak frá gullbræðslu í Rúmeníu árið 2000 og milljónir tonna af fiski drápust í Dóná og Tisza í Rúmeníu og Ungverjalandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Erlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Fleiri fréttir Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Sjá meira