Erlent

Íran í hóp með kjarnorkuvæddum ríkjum

Ahmadinejad, Íransforseti, (t.v.) ræðir við Hassan Firoozabadi, hershöfðingja.
Ahmadinejad, Íransforseti, (t.v.) ræðir við Hassan Firoozabadi, hershöfðingja. MYND/AP

Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, tilkynnti í dag að Íran hefði bæst í hóp þeirra þjóða sem hefðu yfir kjarnorkutækni að ráða. Hann sagði Írana staðráðna í að hefja auðgun úrans á sama stigi og þær þjóðir sem nýti sér kjarnorku. Forsetinn sagði í ávarpi að vestræn ríki yrðu að virða rétt Írana til að nýta kjarnorku í friðsamlegum tilgangi.

Talsmaður Bush Bandaríkjaforseta sagði málið ekki taka rétta stefnu og ef fram haldi sem horfi verið bandarísk yfirvöld að ræða næstu skref við þær þjóðir sem eiga sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×