Erlent

29 ákærðir vegna hryðjuverkanna í Madríd

Mynd af vettvangi í Madríd í mars 2004.
Mynd af vettvangi í Madríd í mars 2004. MYND/AP

29 menn voru í dag ákærðir fyrir aðild að sprengjuárásunum í Madríd á Spáni í mars 2004 sem urðu hátt í 200 manns að bana. Rúmlega 1700 manns særðust í hryðjuverkaárásinni en herskáuum múslimum hefur verið kennt um.

Rannsóknardómari birti mönnunum ákærurnar, sex þeirrra eru kærðir fyrir morð og morðtilræði og af þeim eru fimm ákærðir fyrir aðild að hryðjuverkasamtökum.

116 menn hafa verið handteknir vegna málsins og hafa 24 þeirra verið í gæsluvarðhaldi. Ekki er búist við að byrjað verði að rétta í málinu fyrr en á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×