Ekki víst hvort hægri hönd bin Ladens hafi fallið í loftárás í Pakistan 14. janúar 2006 18:37 Ayman al-Zawahri, hægri hönd Osama bin Ladens. MYND/AP
18 liggja í valnum eftir eldflaugaárás á þorp í Pakistan þar sem liðsmenn al-Qaida samtakanna voru sagðir hafast við. Íbúar þorpsins sverja af sér öll slík tengsl og segja konur og börn hafa farist í árásinni. Fregnir af árásinni sem gerð var seint í gærkvöldi eru enn óljósar en svo virðist sem ómönnuð herþota hafi skotið eldflaugum að húsum í Damadola, litlu þorpi nærri afgönsku landamærunum. Þar var talið að háttsettir liðsmenn al-Kaída hryðjuverkanetsins hefðu aðsetur, þar á meðal Ayman al-Zawahri, egypski læknirinn sem er sagður hægri hönd Osama bin Laden. Íbúar í þorpinu eru að vonum æfir yfir árásinni enda segjast þeir hvorki hafa tengsl við al-Kaída né talibana. Þeir segja að flestir hinna látnu séu konur og börn. Talið er að bandaríska leyniþjónustan CIA hafi staðið fyrir árásinni en það hefur þó ekki fengist staðfest. Í það minnsta sagði talsmaður Bandaríkjahers að engar aðgerðir stæðu yfir á hans vegum á þessum slóðum um þessar mundir. Síðdegis fordæmdu svo pakistanskir ráðamenn árásina en þeir vildu þó ekki ganga svo langt að kenna Bandaríkjamönnum um hana.
Erlent Fréttir Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fleiri fréttir Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Sjá meira