Fuglaflensutilfellum fjölgar enn 9. janúar 2006 23:45 Tyrkneskur sóttvarnastarfsmaður fangar fugl sem á að farga. MYND/AP
Fuglaflensutilfellum heldur áfram að fjölga í Tyrklandi og virðist fátt geta stöðvað för þessarar skaðræðisflensu vestur á bóginn. Þótt smithættan fari vaxandi telur Haraldur Briem sóttvarnalæknir ekki ástæðu til að vara við ferðum til landsins. Fuglaflensa af H5N1-stofni hefur nú greinst á þremur svæðum í Tyrklandi og er veikin þar með orðið að faraldri í landinu. Í síðustu viku dóu þrjú systkin í austasta hluta þess, um helgina fannst flensan í höfuðborginni Ankara og í dag svo bárust fregnir um að íbúar við Svartahafið hefðu tekið sóttina. Recep Akdag, heilbrigðisráðherra Tyrklands, lýsti stöðunni á fréttamannafundi í morgun þegar hann heimsótti þorpið þar sem systkinin bjuggu. "Rannsóknarstofur hafa staðfest fjórtán tilfelli og þrír af þeim fjórtán sem hafa sýkst hafa þegar látist." Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvernig fjórtánmenningarnir smituðust en þó er vitað að börnin sem dóu höfðu leikið sér að höfðum hæsnahræja sem hafa að öllum líkindum verið sýkt. Talsmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í Tyrklandi lagði þó á það áherslu að ekkert benti til að veiran væri farin að berast á milli manna. Tyrkirnir eru þeir fyrstu sem smitast af veikinni í Evrópu en þar til í síðustu viku hafði smit í mönnum einungis greinst í Suðaustur-Asíu og Kína. Þeir sem sýkjast eiga ekki náðuga daga í vændum. Auk þess að valda hefðbundnum flensueinkennum leggst veiran á öndunarfæri, lifur og jafnvel miðtaugakerfið. Haraldur Briem sóttvarnalæknir sagði í viðtali á NFS í dag að dánartíðni smitaðra væri afar há. Um helmingur allra sem smitast látast en til samanburðar létust þrjú prósent þeirra sem veiktust af spánsku veikinni og þótti dánartíðnin há. Þrátt fyrir þetta telur Haraldur ekki ástæðu til að vara sérstaklega við ferðum til Tyrklands, en landið hefur verið vinsæll áningarstaður íslenskra ferðamanna undanfarin sumur.
Erlent Fréttir Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Innlent Fleiri fréttir Sextán látin: Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Sjá meira