Erlent

Óhæfuverk í Írak

Á meðan ráðamenn í Írak ræða skipan nýrrar ríkisstjórnar hafa minnst átta Írakar fallið í röð sprengjuárása í höfuðborginni Bagdad í dag. Þá fundust 17 lík í borginni í dag og bendir allt til þess að fólkið hafi verið pyntað áður en það var myrt.

15 lík fundust í litlum sendibíl sem hafði verið lagt rétt fyrir utan Bagdad. Það voru lögreglumenn í Abu Ghraib sem fudnu líkin. Svo virðist sem fólkið hafi verið pyntað grimmilega áður en það var tekið af lífi. Annars staðar í borginnu fundust tvö lík til viðbótar og meðferðin svipuð. Talið er að morðin tengist átökum trúarbrota sem hafa magnast stig af stigi síðustu vikur.

Þessu til viðbótar hafa minnst átta Írakar týnt lífi og tugir særst í sjö sprengjuárásum í Bagdad í dag. Flestir, eða fimm, féllu þegar bílsprengja sprakk nálægt háskóla í austurhluta borgarinnar. Þrír féllu í árás sem gerð var nálægt heilbrigðisráðuneytinu. Svo virðist sem henni hafi verið beint gegn lögreglu.

Talið er að þessi árásarhrina tengist því að skriður er komin á viðræður um skipan ríkisstjórnar í landinu sem hafa gengið hægt síðan kosið var til þings í desember. Um helgina var höggvið á hnútinn þegar sjíar útnefndu Jawad al-Maliki í embætti forsætisráðherra í stað Ibrahim al-Jaafari sem Kúrdar og súnníar vildu láta víkja. al-Maliki mun í dag undirbúa viðræður um skipan þjóðstjórnar.

Réttarhöldunum yfir Saddam Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, var haldið áfram í dag og voru rithandarsérfræðingar kallaðir fyrir réttinn til að meta hvort Saddam hefði skrifað undir skjöl þar sem fyrirskipuð voru fjöldamorð á hundrað og fimmtíu sjíum í þorpinu Dujail. Réttarhöldunum var síðan frestað til 15. maí næstkomandi en þá hefja verjendur málfutning sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×