Erlent

Drápu eftirýstan al-Qaida liða í Pakistan

Félagi í al-Qaida samtökunum sem eftirlýstur hefur verið vegna aðildar að sprengingunni í sendiráði Bandaríkjanna í Kenía árið 1998 var skotinn til bana í Pakistan, nærri afgönsku landamærunum, í gærkvöld. Þetta er haft eftir innanríkisráðherra Pakistans. Maðurinn hét Abdul Rehman og var Egypti en Bandaríkjamenn höfðu sett fimm miljónir dollara til höfuðs honum vegna tilræðisins í Kenía. Rehman lést ásamt sex öðrum í loftárás pakistanska hersins á aðsetur uppreisnarmanna við afgönsku landamærin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×